Samhentur hópur
Árangursríkt starf SOS Barnaþorpanna byggist á góðu samstarfi samhents hóps sérhæfðs starfsfólks: Forstöðumanni, til að stýra þeim þáttum er snúa að skipulagi þorpsins í heild sinni og SOS móður sem er miðpunkturinn í lífi barnanna sem okkur er treyst fyrir.
Auk þess er þörf á starfsmönnum svo sem kennurum, sálfræðingum, læknum, félagsráðgjöfum og fleira góðu fólki sem veitir bæði SOS-mæðrunum og þorpsstjóranum nauðsynlegan stuðning til að sinna börnunum og tryggja velferð þeirra.
