Að halda sambandi
Sá dagur kemur í lífi hvers SOS-ungmennis að það yfirgefur barnaþorpið eða ungmennaheimilið.
Þegar sú stund rennur upp leggur SOS mikla áherslu á það við unga fólkið að það geti ætíð leitað til þorpsins ef eitthvað bjátar á. SOS Barnaþorpin hafa í þessu sambandi tekið upp eins konar eftirfylgd, þar sem reglulega er haft samband við ungmennin fyrsta árið sem þau standa á eigin fótum.
Mörg fyrrum SOS-börn viðhalda nánu sambandi við þorpið sem þau ólust upp í, koma reglulega í heimsókn og hitta SOS-móður sína. Þau koma svo síðar með sín eigin börn til að sína þau og einnig til að lofa þeim að sjá hvar þau ólust upp.
Í sumum löndum hittast fyrrum SOS-börn reglulega. Það eru jafnvel til samtök fyrrum SOS-barna í sumum löndum, þar sem fólk kemur saman til að viðhalda tengslunum eftir að þau yfirgefa þorpið.
