Samfélagasmiðstöðvar
Samfélagsmiðstöðvar SOS eru hjálparmiðstöðvar fyrir fjölskyldur í vanda. Einkum konum og börnum, sem búa í námunda við SOS Barnaþorpin. Markmiðið er að hjálpa fjölskyldum að finna leiðir til að losna úr ánauð fátæktar og skorts og hjálpa ungu fólki að öðlast fjárhagslegt sjálfstæði.
Neyð margra fjölskyldna er mikil en stundum þarf ekki mikið til að hjálpa þeim á rétta sporið. Í samfélagsmiðstöðvunum geta foreldrar sótt námskeið í lestri, fatasaumi, bakstri, rekstri lítilla fjölskyldufyrirtækja og jafnvel fengið örlán til að hefja atvinnustarfsemi.
Þá bjóða samfélagsmiðstöðvarnar einstæðum foreldrum upp á barnagæslu á meðan þeir stunda nám eða afla heimilinu tekna.
Fjölskylduefling SOS er unnin út frá samfélagsmiðstöðvunum.
