Neyðaraðstoð

SOS Barnaþorpin eru ekki neyðarhjálparsamtök, en...

Um 40.000 manns munu njóta stuðnings SOS á Haítí næstu vikur og mánuði...undanfarin ár hafa ítrekað orðið náttúruhamfarir nálægt starfsstöðvum SOS, enda útbreiðsla samtakanna mjög mikil. Búast má við að umfang náttúruhamfara, hungursneyða og annarra hörmunga í heiminum muni aukast enn frekar á næstu árum.

Með áratuga reynslu á bakinu, framúrskarandi starfsfólk og öfluga stuðningsaðila kemur því ekki annað til greina en að veita neyðaraðstoð í slíkum tilvikum. Leggja þá samtökin mesta áherslu á að hjálpa þeim börnum sem misst hafa foreldra sína eða týnt í hamförunum og þau börn sem eiga slíkan aðskilnað á hættu.

SOS Barnaþorpin nýta þá þekkingu og reynslu sem þau hafa í hverju landi þegar veita þarf neyðaraðstoð. Samvinna við yfirvöld og önnur hjálparsamtök eins og Rauða krossinn, Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og  Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hefur einnig reynst vel og leitt til skilvirkari aðgerða.

Dæmi um neyðaraðstoð SOS Barnaþorpanna:

2012 - Flóttabörn í Suður-Súdan

2012 - Hungursneyð í Vestur-Afríku (Malí, Níger, Búrkina Fasó og Tsjad)

2011 - Hungursneyð í Austur-Afríku (Eþíópíu, Kenía og Sómalíu)

2011 - Jarðskjálfti og flóðbylgja í Japan

2010 – Jarðskjálfti í Chile

2010 – Jarðskjálfti á Haítí

2010 – Hungursneyð í Níger

2010 – Flóð í Pakistan

2009 – Jarðskjálfti á Indónesíu

2009 – Flóð í Senegal

2009 – Flóð í Búrkina Fasó

2009 – Flóð á Filippseyjum

2009 – Fellibylur í El Salvador

2009 – Borgarastyrjöld á Sri Lanka – aðtoð við flóttabörn

2009 – Átök í Pakistan – aðstoð við flóttafólk

2009 – Átök á Madagaskar

2004 – Flóðbylgjur í Asíu (Tsunami)

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica