Beint í leiðarkerfi vefsins.
SOS-samtökin líta svo á að fjölskyldan sé mikils virði og best sé fyrir börn að alast upp með kynforeldrum sínum og systkinum.
Því miður neyðast þó fjölmargir foreldrar til að láta frá sér börn sín vegna erfiðra heimilisaðstæðna. Fjölskyldueflingunni er haldið uppi af SOS-skjólvinum. >> Lesa meira
Í SOS Barnaþorpum fá munaðarlaus og yfirgefin börn staðgengil fyrir þá fjölskyldu sem þau hafa misst. SOS-móðirin gegnir þar lykilhlutverki. Hún gengur börnunum í móðurstað og elur þau upp sem þau væru hennar eigin. >> Lesa meira
Á unglingsárunum undirbúum við okkur fyrir fullorðinsárin. Þá flytja SOS-börnin gjarnan yfir á sérstök ungmennaheimili þar sem unglingarnir læra með aðstoð unglingaráðgjafa að reka sitt eigið heimili. >> Lesa meira
Venjulega sækja börn frá SOS barnaþorpunum nærliggjandi leikskóla. Í löndum og á svæðum þar sem leikskólar eru ekki fyrir hendi eða eru metnir ófullnægjandi hafa SOS barnaþorpin hins vegar byggt sína eigin leikskóla. Þessir leikskólar eru opnir börnum frá SOS þorpunum sem og öðrum börnum úr nágrenni þorpanna. >> Lesa meira
Víða um heim þar sem skólaaðstaða er ófullnægjandi eða engin telst menntun til forréttinda en ekki grundvallar mannréttinda. SOS-barnaþorpin byggja því oft skóla í löndum utan Evrópu sem ekki eru aðeins opnir SOS-börnunum heldur einnig börnunum í nágrenninu.
>> Lesa meira
SOS verknámsskólarnir eru mikilvægar einingar í því starfi sem unnið er með unglingum. Verknámsskólarnir veita unglingum frá SOS Barnaþorpunum auk annarra ungmenna úr nágrenninu raunhæfa möguleika á starfi þegar námi lýkur og stuðla þannig að sjálfstæði þeirra. >> Lesa meira
Markmið SOS félagsmiðstöðva sem eru starfræktar út um allan heim er mismunandi eftir staðsetningu þeirra og velferðakerfis viðkomandi lands. Þeim er ætlað að hjálpa fjölskyldum, sér í lagi konum og börnum, sem búa í námunda við SOS Barnaþorpin.
Markmiðið er að hjálpa fjölskyldum að finna leiðir til að losna úr ánauð fátæktar og öðlast fjárhagslegt sjálfstæði. >> Lesa meira
Fram til þessa hafa SOS Barnaþorpin sett upp um 65 heilsugæslustöðvar utan Evrópu í þeim tilgangi að hjálpa því fólki sem hefur lítinn eða engan aðgang að heilsugæsluaðstoð.
Markmið SOS heilsugæslustöðvanna er að auka gæði heilsugæslunnar á hverju svæði, vinna að forvörnum með bólusetningum og fræðslu, draga úr ungbarnadauða, að fæða vannærð börn og veita skyndihjálp. >> Lesa meira
SOS Barnaþorpin nýta þá þekkingu og reynslu sem þau hafa í hverju landi þegar veita þarf neyðaraðstoð. Samvinna við yfirvöld og önnur hjálparsamtök eins og Rauða krossinn, Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hefur einnig reynst vel og leitt til skilvirkari aðgerða. >> Lesa meira