Almennt um SOS

Fyrst og fremst eru SOS Barnaþorpin barnahjálp sem veitir munaðarlausum og yfirgefnum börnum staðgengil fyrir þá fjölskyldu sem þau hafa misst.

„Barn dettur úr hreiðri sínu. Við sjáum því fyrir móður, systkinum og heimili. Gæti ekki verið einfaldara.“
– Hermann Gmeiner stofnandi SOS Barnaþorpanna.

tpa_picture_90Samtökin voru stofnuð í Austurríki í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar árið 1949.

Auk þess að reka yfir 500 barnaþorp um allan heim standa SOS Barnaþorpin fyrir umfangsmiklu forvarnarstarfi sem kallast Fjölskylduefling SOS. Skjólstæðingar Fjölskyldueflingar eru illa staddar barnafjölskyldur og er þeim hjálpað að koma undir sig fótunum og mæta grunnþörfum barnanna. Markmiðið er að börnunum líði vel og koma í veg fyrir aðskilnað þeirra og foreldranna.

Þá reka samtökin fjölda leikskóla, grunnskóla, verknámsskóla, ungmennaheimila, samfélagsmiðstöðva, heilsugæslustöðva auk þess að sinna neyðaraðstoð.

SOS Barnaþorpin starfa óháð trúarbrögðum.

Árið 2007 fengu SOS Barnaþorpin OFID verðlaunin fyrir að vera öflug barnahjálp og stuðla að velferð barna í heiminum. Það er OPEC, samband olíuútflutningsríkja, sem veitir verðlaunin árlega.

Umfang barnahjálpar SOS Barnaþorpanna 1. janúar 2011:

Starfseining Fjöldi Styrkþegar
SOS Barnaþorp 518
62.702
SOS Ungmennaheimili 392 17.535
SOS Leikskólar 229 23.082
SOS Grunnskólar 186 109.340
SOS Verknámsskólar 103 26.254
SOS Samfélagsmiðstöðvar 607 430.447
SOS Heilsugæslustöðvar 72
455.607
SOS Neyðaraðstoð 13
1.137.733

Samtals

2.120

2.262.700




Þetta vefsvæði byggir á Eplica